Advertisement
Tímamótaverkið Arabian Horse flutt í heild sinni ásamt öðrum helstu tónverkum sveitarinnar.ATHUGIÐ!
Þau sem skrá sig í GusGus samfélagið geta tryggt þér sæti áður en almenn miðasala hefst.
Skráning hér 👉 www.gusgus.com/unity
Forsala fyrir GusGus samfélagið hefst mán. 13. nóv. kl. 11:00.
Almenn miðasala hefst þri. 14. nóv. kl. 10:00.
---
Arabian Horse er partíplata með djúpa sál og minningin lifir af tónleikum sem og af dansgólfi.
Í nóvember 2024 fáum við loks að upplifa plötuna flutta aftur.
Þar fáum við að njóta plötunnar í heild sinni, leyfa taktinum að taka okkur og upplifa litbrigði tilfinninga sem streyma í gegnum þetta meistaraverk.
GusGus er þekkt fyrir að leggja allt í sölurnar í Eldborg enda fáar hljómsveitir sem eru jafn þéttar á tónleikum.
Tryggið ykkur miða í tíma, því allir tónleikar sveitarinnar til þessa hafa selst upp vel fyrir tónleikadag.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland