Advertisement
ÖBÍ býður stjórnendum, starfsfólki og sjálfboðaliðum aðildarfélaga á hagnýta fræðslu um jákvæða vinnustaðamenningu og fagleg samskipti fimmtudaginn 7. maí kl. 13:00 - 15:00 í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42 (Ólafarstofu). Fræðslan er leidd af reyndum sérfræðingum frá AUKA – mannauðs- og stjórnendaráðgjöf og nýtist öllum sem vilja efla samskipti, styrkja starfsumhverfið og takast betur á við krefjandi aðstæður í starfi.
Leiðbeinendur
Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir sem búa yfir áralangri reynslu og sérþekkingu á mannauðsmálum. Nánari upplýsingar má finna á www.auki.is.
Skráning
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í gegnum skráningarform: https://www.obi.is/jakvaed-vinnustadamenning-og-fagleg-samskipti/
ÖBÍ ber allan kostnað af námskeiðinu.
Við hvetjum ykkur til að tryggja ykkur sæti og taka þátt.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Advertisement
Event Venue
Mannréttindahúsið, Sigtún 42,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











