Advertisement
Í tilefni af 50 ára afmæli Evrópska húsverndarársins standa Minjastofnun Íslands og Íslandsdeild ICOMOS fyrir málþinginu „Framtíð fyrir fortíðina“ sem haldið verður í IÐNÓ þann 27. nóvember, kl. 09:00–16:00.Evrópska húsverndarárið 1975 og Amsterdamyfirlýsingin marka tímamót í sögu húsverndar og baráttu fyrir verndun og uppbyggingu byggingararfsins á Íslandi. Á málþinginu verður sjónum beint að byggingararfi í fortíð, nútíð og framtíð.
Formleg dagskrá hefst kl. 9.30
Dr. Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Alma Sigurðardóttir, formaður Íslandsdeildar Icomos og Guðný Gerður Gunnarsdóttir, fyrrum minjavörður Reykjavíkur
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt
María Gísladóttir, arkitekt hjá Minjastofnun Íslands
Anna María Bogadóttir, arkitekt
Hádegismatur í boði á staðnum 11.30-12
Vignir Freyr Helgason, arkitekt hjá Riksantikvaren í Noregi
Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt frá Skipulagsstofnun
Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusasfns
Nemar í BA-námi í arkitektúr við LHÍ
Grethe Pontoppidan, arkitekt
Léttar veitingar 15.00
Pallborð með fyrirlesurum 15.15
Þar sem sætafjöldi er takmarkaður óskum við eftir að þátttakendur skrái sig hér: https://www.surveymonkey.com/r/3P2RYH8
Kaffi og hádegismatur er í boði fyrir skráða þátttakendur.
Athugið að málþingið verður í beinu streymi (hlekk deilt síðar).
Advertisement
Event Venue
IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.