Advertisement
Í gegnum árin hefur flugsýning á Reykjavíkurflugvelli vakið mikla eftirtekt. Mikill mannfjöldi hefur mætt til þess að sjá bæði gamlar og nýjar flugvélar. Á lofti hafa helstu vélar landsins sýnt listir sínar en jafnframt höfum við fengið góða gesti til þess að taka þátt í hátíðinni með okkur.Flugsýning á Reykjavíkurflugvelli hefur komið í staðinn fyrir safn eða í það minnsta viðurkenningu á mikilvægi flugs í höfuðborg landsins. Á flugsýningunni má með lifandi hætti sjá þann drifkraft og orku sem liggur í grasrót flugs á Íslandi. Á henni virðum við söguna, hið liðna, fögnum núinu og undirbúum framtíðina með því að vekja áhuga hjá komandi kynslóðum.
Þeir erlendu gestir sem hafa komið hafa furðað sig á fjölbreytni og þeim drifkrafti sem einkennir íslenskt flugsamfélagi. Af því erum við stolt.
Verið velkomin á Flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli þar sem flugsamfélagið kemur saman til að sýna sig og sjá aðra.
Góða skemmtun!
Advertisement
Event Venue
Reykjavíkurflugvöllur, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











