Advertisement
VR hvetur allt félagsfólk til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí.Fjölskylduhlaup VR á Klambratúni 🏅
Í Reykjavík verður hitað upp fyrir kröfugöngu með léttu hlaupi og dagskrá fyrir alla fjölskylduna á Klambratúni. Söngvarinn og skemmtikrafturinn Jónsi stýrir dagskránni sem hefst kl. 11:30. Söngkonan Hildur Magnúsdóttir tekur nokkur lög.
Íþróttaálfurinn hitar upp fyrir hlaupið sem er 1,5 km leið í kringum túnið. Þátttaka er ókeypis og allir þátttakendur fá verðlaunapening.
Boðið verður upp á ostaslaufur, safa og gos og Sirkus Íslands verður á svæðinu.
Öll velkomin!
Kröfuganga og verkalýðskaffi í Reykjavík 📢🍰
Í Reykjavík verður safnast saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti kl. 13:00 en við munum ganga þangað frá Klambratúni með Jónsa og Lúðrasveit verkalýðsins í fararbroddi. Kröfugangan leggur svo af stað kl. 13:30.
Útifundur hefst á Ingólfstorgi um kl. 14:00 en ræðumaður dagsins er Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsfólk í anddyri Laugardalshallar kl. 14:30 að loknum útifundinum.
Nánari dagskrá á öðrum félagssvæðum VR verður auglýst síðar.
Sjáumst 1. maí! ✊
_______________________________________
VR encourages all members to turn out in large numbers for the marches and outdoor rallies to mark International Workers’ Day on 1 May.
VR Family Run at Klambratún 🏅
In Reykjavík, we’ll warm up for the march with an easy run and a programme for the whole family at Klambratún. The singer and entertainer Jónsi will host the programme, which starts at 11:30. The singer Hildur Magnúsdóttir will perform a few songs.
Íþróttaálfurinn will lead the warm-up for the run, which is a 1.5 km route around the park. Participation is free, and all participants receive a medal.
Cheese rolls, juice and soft drinks will be available, and Circus Iceland will be on site.
Everyone is welcome!
March and workers’ coffee in Reykjavík 📢🍰
In Reykjavík, we will gather for the march at Skólavörðuholt at 13:00, and we will walk there from Klambratún with Jónsi and the Labour Brass Band leading the way. The march then sets off at 13:30.
The outdoor rally will begin at Ingólfstorg at around 14:00, and the speaker of the day is Halla Gunnarsdóttir, Leader of VR.
VR will host its annual workers’ coffee for members in the foyer of Laugardalshöll at 14:30, following the outdoor rally.
A more detailed programme in Reykjavík and in other VR membership areas will be advertised later.
See you on 1 May! ✊
Advertisement
Event Venue
Húsi verslunarinnar í Kringlunni 7, 103 Reykjavík., Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











