Ferðalag til fortíðar - Ferðaþjónusta og fornleifar

Fri Dec 05 2025 at 12:00 pm to 02:15 pm

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland | Reykjavík

\u00dej\u00f3\u00f0minjasafn \u00cdslands\/ National Museum of Iceland
Publisher/HostÞjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland
Fer\u00f0alag til fort\u00ed\u00f0ar - Fer\u00f0a\u00fej\u00f3nusta og fornleifar
Advertisement
Þjóðminjasafn Íslands og Félag fornleifafræðinga standa sameiginlega að dagskrá í tilefni afmælisdags Dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Dagskráin fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 5. desember, kl 12-14:15.
Kristján vakti áhuga þjóðarinnar á fornleifum í gegnum rannsóknir sínar, skrif og þáttagerð. En hvernig gengur að miðla þeirri sögu sem fornleifarnar hafa að geyma til íslensku þjóðarinnar og erlendra ferðamanna?
Snædís Sunna Thorlacius, formaður Félags fornleifafræðinga stýrir dagskránni.
Dagskrá
Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður setur viðburðinn.
- Viðey - Miðlun menningarsögu
Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fv. þjóðminjavörður
- Tækifæri í fornleifaferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
- Fornleifar og ferðaþjónusta - Hvað viljum við vita?
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
KAFFIHLÉ
- Raddir úr rústum - Miðlun sögu og fornleifa til gesta á Þingvöllum og Hrafnseyri
Margrét Hrönn Hallmundsdóttir, staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð og fyrrverandi deildarstjóri fornleifadeildar Náttúrustofu Vestfjarða
- Frá mold til miðlunar - Ferðamenn og fornleifar á Skriðuklaustri
Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar
Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Öll velkomin, enginn aðgangseyrir!
Advertisement

Event Venue

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: