Advertisement
Boðað er til félagsfundar Sósíalistaflokks Íslands 31. janúar á Hverfisgötu 105.Húsið opnar klukkan 10:30 og fundurinn hefst stundvíslega klukkan 11:00. Boðið er upp á að taka þátt í gegnum Zoom að vanda og mun það einnig opna klukkan 10:30 svo tími gefist til að staðfesta skráningu í félagatal. Á Zoom þarf að koma fram undir fullu nafni og helst í mynd.
Mikilvægt er að vera stundvís af virðingu við aðra fundargesti.
Á fundinum munu fulltrúar frá Framkvæmdastjórn, Málefnastjórn og Kosningastjórn segja frá störfum stjórna og ræða helstu málefni. Félagsfólki gefst tækifæri á að spyrja spurninga og eiga umræður.
Dagskrá er eftirfarandi:
1. Framkvæmdastjórn segir frá starfinu.
2. Málefnastjórn segir frá starfinu.
3. Kosningastjórn segir frá starfinu.
4. ROÐI segir frá starfinu
5. Sagt frá starfi svæðisfélaga
6. Frambjóðendur segir frá starfinu
7. Önnur mál
Léttar veitingar verða í boði og öll framlög vel þegin. Félagsfundir eru frábært tækifæri til að kynnast starfinu betur og til að taka þátt.
https://us06web.zoom.us/j/83108243320?pwd=NzdasLnmMFpyyOBEkCjkIF6NXN4lg9.1
Fundur stendur í um eina og hálfa klukkustund.
Advertisement
Event Venue
Hverfisgata 105, 101 Reykjavík, Iceland, Hverfisgata 105, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











