Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 29. apríl kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram hljómsveit trommuleikarans Erik Qvick, Jazzsendiboðarnir. Hljómsveitin er skipuð nokkrum af reyndustu djassleikurum landsins, lyftir hattinum fyrir goðsögnum Hard Bop-tímabilsins. Sveitin hefur verið starfandi frá árinu 2007 og er kvintettinn leiddur af trommuleikaranum Erik Qvick. Jazzsendiboðarnir hafa komið fram á tónleikum víða. Leikin verða lög eftir Benny Golson, Duke Pearson, Bill Hardman, Blue Mitchell og fleiri, þar sem áherslan er á mikla sveiflu, lagræn sóló og almennan hressleika.Snorri Sigurðarson, trompet
Ólafur Jónsson, saxófónn
Kjartan Valdemarsson, píanó
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Erik Qvick and Jazzsendiboðarnir
The quintet Djass Sendiboðarnir pays tribute to the music of the hard bop era. Led by drummer Erik Qvick, the band has been performing regularly since 2007, with numerous concerts around Iceland. The quintet will present a swinging set featuring music by Benny Golson, Duke Pearson, Bill Hardman, among others.
Snorri Sigurðarson, trumpet
Ólafur Jónsson, saxophone
Kjartan Valdemarsson, piano
Þorgrímur Jónsson, bass
Erik Qvick, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4900.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í lok maí. Múlinn er að hefja sitt 29. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4900 og 3600 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement
Event Venue
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






