Advertisement
Eftir vel heppnaðar og vinsælar æfingabúðir sumarið 2025, þar sem þátttakendur náðu ótrúlegum framförum og ánægjan skein úr hverju andliti þá höldum við nú Elite Camp æfingabúðirnar á ný og það verður 5.–9. ágúst 2026 í Egilshöll sem býður uppá enn meiri möguleika á fleiri æfingum og meiri afþreyingu. Við munum gera búðirnar enn betri og bætum við einum degi frá því í fyrra. Michael Cooper NBA Hall of Fame kemur aftur sem heiðursgestur enda elskaði hann að tala við krakkanna og gaf svo mikið af sér og mun hann vera með okkur alla daganna. Með honum kemur NBA stjarna frá Los Angeles Lakers sem hefur unnið NBA deildina oftar en flestir en hann verður kynntur síðar.
Irving Thomas, fyrrum leikmaður Los Angeles Lakers og núverandi yfirnjósnari félagsins, mun á ný leiða körfuboltanámskeiðið í Reykjavík sumarið 2026. Búðirnar verða áfram byggðar í anda “Camp Lakers”, sem haldið er árlega í Los Angeles og er eitt vinsælasta körfuboltabúðir innan NBA samfélagsins.
Irving Thomas lék með Los Angeles Lakers tímabilið 1990–1991 og átti síðan farsælan tíu ára atvinnumannaferil í Evrópu á Ítalíu, Frakklandi og Spáni. Frá árinu 2001 hefur hann starfað fyrir Lakers sem útsendari, þjálfari og sérfræðingur í leikmannagreiningu. Hann er einnig skólastjóri “Camp Lakers”, sem laðar til sín þúsundir ungmenna frá öllum heimshornum á hverju ári.
Æfingabúðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 8–17 ára og taka að hámarki 250 þátttakendur, sem tryggir að hver og einn fær einstaklingsmiðaða þjálfun frá reyndu innlendu og erlendu þjálfarateymi.
Auk Thomas munu fimm þjálfarar frá “Camp Lakers” koma til Íslands og vinna í nánu samstarfi við íslenska afreksþjálfara. Allir þjálfararnir hafa mikla reynslu af þróun leikmanna sem stefna á atvinnumennsku, hvort sem er í NBA eða öðrum efstu deildum heims. Allir þátttakendur fá einnig sérhannaða gjöf og glaðning frá búðunum.
Miðasalan fer fram á Abler undir Elite Camp Iceland. Við hvetjum alla að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér pláss.
Fylgist vel með á samfélagsmiðlum Elite Camp Iceland:
Advertisement
Event Venue
Egilshöll, 112 Reykjavík, Iceland, Egilshöll, Víkurvegur, 112 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.




