Advertisement
Hátíðartónleikar – Elín Hall, LYST á AkureyriTónlistarkonan Elín Hall sameinar hlýju hátíðarinnar og melankólíu vetrarins á sérstökum hátíðartónleikum á LYST á Akureyri. Með sínum einkennandi draumkennda hljóðheim og tilfinningaríka flutningi skapar hún töfrandi jólastemningu fyrir Norðlendinga þar sem hún tekur í bland eigin lög og klassísk jólalög í nýjum búningi.
Elín Hall hefur skapað sér einstakan sess í íslenskri menningu sem margverðlaunuð tónlistar- og leikkona. Hún hefur komið fram á hátíðum eins og Iceland Airwaves og BludFest í Bretlandi. Sem leikkona vakti hún heimsathygli fyrir kvikmyndina When the Light Breaks, sem sýnd var á Cannes, og hlaut bæði Edduna og verðlaun fyrir besta leikkonu í aðalhlutverki á kvikmyndahátíðinni í Chicago.
Takmarkaður miðafjöldi.
Advertisement
Event Venue
Eyrarlandsvegur 30, 600 Akureyri, Iceland, Eyrarlandsvegur 30, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.