Advertisement
ATH BREYTINGAR —> FRÍTT INN EÐA
::::: FRJÀLS FRAMLÖG ::::
Ertu ein/n af þeim sem er hætt/ur að nenna fara niðrí bæ um helgar og djamma á einhverjum klúbbum en langar samt alveg að dansa, hafa gaman og hitta fólk, koma heim á skikkanlegum tíma og vakna endurnærð/ur á sunnudeginum?
þà er þetta kvöld sérstaklega hentugt fyrir þig.
DANCE. FLOW. GLOW. TRANSFORM.
❤️🔥Ecstatic dans er frjálst flæði, engrar sérstakrar danskunnáttu er þörf, bara njóta þess að flæða og hlusta hvað líkaminn þinn vill tjá og gera í mómentinu, hægt og mjúkt eða takt fast til skiptis.
Taktu kvöldið frà og settu þig í dansgírinn, klæðum okkur jafnvel upp í einhver litrík föt (neon) og dönsum eins og norðurljósin
Undir beinum áhrifum frá nýju tungli fáum við okkur smà Cacao og dönsum með þeim ásetningi um að opna hjartað, virkja okkur í þvi að vaxa og verða besta útgáfan af okkur sjálfum. Við eflum lífsorkuna, sjálfstraustið okkar og sköpunarkraftinn með því að dansa, leika og hafa gaman, dansinn gefur okkur nefnilega svo mikinn kraft, heldur okkur ungum og hreinsar vel út þunga orku í taugakerfinu sem leiðir til umbreytingu bæði innan sem utan.
🌈 Ég verð með einhverja Neon màlningu fyrir þá sem vilja fara “all in” í tribal gírinn og innra barnið.
Ég hvet ykkur endilega til þess að taka með ykkur allskonar dans props ef þið eigið td : magadansbelti, vængi, slæður, fjaðrir, húllahringi og allskonar skrautlegheit , þeir sem vilja leika listir og þess háttar eruð sérstaklega velkomin.
Dagskrá í stuttu máli :
19:00 - 20:00 mæting - spjalla - tengjast - Cacao seremonia
20:00 - 22: ish Dansflæði
22:30 - Slökun
23:00 - viðburði lokið
Dj. Somatic Creatrix / Wild Feather 🪶 🪶🪶🪶🪶🪶🪶🪶🪶🪶🪶🪶
Ég mun spila allskonar bæði gamla og nýja tónlist, house, techno, organic house, tribal, bellydance, afro, alveg út í hard core þess vegna, við endum svo í ljúfri slökun.
📍Svövuhús
Hólmsland
Tungufell 161
Rvk
Frá kl : 19-23
Laugardaginn 4 Oktober
❤️🔥
Tek vel á móti öllum
Stígum út fyrir þægindarammann og sköpum góðar minningar saman
❤️🔥❤️🔥❤️🔥
Ath ! Þetta er áfengislaus viðburður
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Svövuhús, Vöruhús, Laugavegur, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland