Drífa Viðar - útgáfuteiti

Fri, 21 Nov, 2025 at 04:00 pm

Fiskislóð 39, 101 Reykjavíkurborg, Ísland | Reykjavík

\u00c1str\u00edki \u00fatg\u00e1fa
Publisher/HostÁstríki útgáfa
Dr\u00edfa Vi\u00f0ar - \u00fatg\u00e1futeiti
Advertisement

Kæru vinir, fjölskylda og aðrir velunnarar!
Verið velkomin að fagna með okkur útgáfu bókar um Drífu Viðar myndlistarkonu, rithöfund, gagnrýnanda og baráttukonu.
Útgáfuteitið fer fram föstudaginn 21. nóvember kl. 16 – 18 í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39. Þar munu aðstandendur útgáfunnar kynna bókina stuttlega og boðið verður upp á léttar veitingar og skemmtiatriði.
Eintök af bókinni verða á tilboðsverði þennan dag og einnig verður hægt að kaupa eftirprent af verkum Drífu í útgáfuteitinu. Þeir sem studdu við verkefnið á Karolina Fund fá eintök sín afhent á staðnum en geta líka fengið þau send í pósti.
.......................
Drífa Viðar
Málari, rithöfundur, gagnrýnandi, baráttukona
Ritstjórar Auður Aðalsteinsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Kristín Guðrún Jónsdóttir

Drífa Viðar (1920-1971) var myndlistarmaður, rithöfundur og gagnrýnandi og tók þátt í stjórnmálaumræðu síns tíma. Eftir hana liggja fjölmörg verk af ýmsum toga. Í bókinni eru greinar sem gefa innsýn í ævistarf hennar, um 100 myndverk sem sum hafa aldrei komið fyrir augu almennings áður, brot úr bréfum og ýmiss fróðleikur um ævi Drífu og störf.
Á 100 ára fæðingarafmæli Drífu skipulögðu afkomendur hennar og fjölskyldur þeirra málþing um ævi hennar og störf, og valin myndverk hennar voru tekin til sýningar. Bókin er afrakstur þess viðburðar.
Greinar bókarinnar gefa innsýn í fjölbreytt ævistarf Drífu. Í inngangi Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur og Jóns Thoroddsen er fjallað um ævi hennar og hugðarefni. Helga Kress skrifar greiningu á skáldverkum Drífu, Aðalheiður Valgeirsdóttir fjallar um myndlist hennar og einnig er endurbirt grein Aðalsteins Ingólfssonar um myndlistarkonuna Drífu. Auður Aðalsteinsdóttir skrifar um bókmennta- og listgagnrýni hennar og Einar Steinn Valgarðsson tekur saman skrif um stjórnmálaþátttöku hennar.
Elísabet Gunnarsdóttir hafði umsjón með sérstökum kafla um myndlist Drífu Viðar þar sem finna má fjölda málverka og teikninga og einnig eru birt brot úr bréfum Drífu sem lýsa bæði tíðaranda og afstöðu hennar til listarinnar. Þá er gefin innsýn í önnur störf og áhugamál Drífu, svo sem þátttöku hennar í leiksýningum og barnatíma útvarpsins.
Bókin er skref í þá átt að gera ævistarf Drífu Viðar aðgengilegt bæði almenningi og fræðimönnum og stuðla að því að hún hljóti réttmætan sess í lista- og bókmenntasögunni.
Advertisement

Event Venue

Fiskislóð 39, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Fiskislóð 39, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: