Die schöne Müllerin

Sun, 23 Nov, 2025 at 04:00 pm

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjavík

Die sch\u00f6ne M\u00fcllerin
Advertisement
Jóhann Kristinsson hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir söng sinn. Í fyrra hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngvari ársins innan sígildrar tónlistar. Píanóleikarinn Ammiel Bushakevitz er einnig margverðlaunaður og hefur skipað sér sess sem einn af eftirsóttustu ljóðameðleikurum heims. Hann kemur reglulega fram með mörgum af virtustu ljóðasöngvurum samtímans og kemur nú aftur til Íslands þess að halda tónleika með Jóhanni.
Undanfarin ár hafa þeir haldið marga ljóðatónleika hérlendis og flutt m.a. Vetrarferðina og Svanasönginn eftir Schubert við frábærar viðtökur. Nú er komið að ljóðaflokkinum „Malarastúlkan fagra” eða „Die schöne Müllerin” sem Franz Schubert samdi við ljóð Wilhelms Müller.
Almennt miðaverð er kr. 6500, en öryrkjar og eldri borgarar fá miðann með 15% afslætti í miðasölu Hörpu og síma 525 5050.
Tónleikarnir eru styrktir af Ýli og Styrktarsjóði samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.
Advertisement

Event Venue

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: