Caroline Shaw - Portrett

Fri, 27 Feb, 2026 at 06:00 pm UTC+00:00

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2 | Reykjavík

Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands
Publisher/HostSinfóníuhljómsveit Íslands
Caroline Shaw - Portrett
Advertisement
Bandaríska tónskáldið, fiðluleikarinn og söngkonan Caroline Shaw er ein mest spennandi röddin í samtímatónlist í dag. Tónlist Shaw og aðferðir hafa vakið mikla athygli, víða um lönd og langt út fyrir heim sígildrar tónlistar, fyrir hugmyndaauðgi og tilraunamennsku sem kallar á túlkun og virka aðkomu hlustenda. Shaw, sem upphaflega er menntaður fiðluleikari, snéri sér eftir fiðlunámið að tónsmíðum með góðum árangri. Hún er margverðlaunuð á Grammy-verðlaununum en skaust upp á stjörnuhimininn árið 2013, þegar hún hlaut Pulitzer-verðlaunin sem tónskáld fyrir partítu sína fyrir átta raddir. Shaw var þá yngst allra þeirra sem höfðu hlotið þau virtu verðlaun fyrir tónsmíðar. Verk Caroline Shaw gera oft miklar kröfur til flytjenda en bera líka með sér einhvern ríkan tíðaranda. Hluti þeirra höfundareinkenna er rík meðvitund um arf tónlistarsögunnar sem vefur sér leið inn í tónmálið á úthugsaðan máta.
Á þessum óvenjulegu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands með Caroline Shaw í forgrunni kynnumst við fjórum mjög svo ólíkum verkum hennar. Á tónleikunum verður hefðbundið tónleikaform brotið upp og mun hljómsveitin vera í hringuppstillingu á sviði. Áhorfendur sitja umhverfis hljómsveitina á kórvögnum, til hliðar við svið og í fremstu röðum í salnum. Með þessu móti gefst áhorfendum tækifæri til að upplifa hljóm og flutning hljómsveitarinnar á einstakan hátt.
Tónleikanir eru um klukkustundarlangir og án hlés.
Efnisskrá
Caroline Shaw Entr'acte
Caroline Shaw in manus tuas
Caroline Shaw Its Motion Keeps
Caroline Shaw Lo, fiðlukonsert
Hljómsveitarstjóri
Daníel Bjarnason
Einleikari
Caroline Shaw
Kór
Kammerkórinn Aurora
Kórstjóri
Sigríður Soffía Hafliðadóttir
//
American composer, violinist, and singer Caroline Shaw is one of the most exciting voices in contemporary music today. Shaw's music and methods have attracted much attention, in many countries and far beyond the world of classical music, for their imaginativeness and experimentation that call for interpretation and active involvement from listeners. Shaw, who originally trained as a violinist, turned to composition after her violin studies with great success. She is a multiple Grammy Award winner, but rose to stardom in 2013, when she won the Pulitzer Prize as a composer for her Partita for Eight Voices. Shaw was then the youngest recipient of the prestigious award for composition. Caroline Shaw's works often make high demands on performers but also carry with them a rich zeitgeist. Part of their author characteristics is a rich awareness of the heritage of music history that weaves its way into the musical language in a thoughtful way.
In this extraordinary concert by Caroline Shaw, we will be introduced to four of her very different works. The concert will break up the traditional concert format and the orchestra will be in a ring formation on stage. The audience sits around the orchestra in Eldborg Hall, to the side of the stage, and in the front rows of the auditorium. This event gives audiences the opportunity to experience the orchestra's sound and performance in a unique way.
The concert is about an hour long, without an intermission.
Program
Caroline Shaw Its Motion Keeps
Caroline Shaw in manus tuas
Caroline Shaw Entr’acte
Caroline Shaw Lo, violin concerto
Conductor
Daníel Bjarnason
Soloist
Caroline Shaw
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

Tom\u00e1\u0161 Hanus & Stef\u00e1n Ragnar
Thu, 05 Mar at 07:30 pm Tomáš Hanus & Stefán Ragnar

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

Kian Soltani leikur Lutos\u0142awski
Thu, 12 Mar at 07:30 pm Kian Soltani leikur Lutosławski

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

Elgar & Eldfuglinn
Fri, 13 Mar at 06:00 pm Elgar & Eldfuglinn

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

Dara \u00d3 Briain Re:Creation
Fri, 20 Mar at 08:00 pm Dara Ó Briain Re:Creation

Háskólabíó

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events