Advertisement
Miðasala hefst, þriðjudaginn 2.sept kl:10:00 á tix.is. Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tónleikarnir í ár eru merkilegir fyrir þær sakir að tónleikaröðin fagnar 40 ára afmæli. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985. Þótt staðsetning tónleikanna hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mætir með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.
Til hamingju, Bubbi Morthens, með þessi merku tímamót og kæru gestir, eigið gott kvöld.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Bíóhöllin Akranesi, Vesturgata 27, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland