Advertisement
Fjórtándi febrúar er dagur elskenda, bæði þeirra sem sjást og kyssa en líka þeirra sem þjást og missa. Mikið hefur verið samið og kveðið í tali og tónum um ástina en talsvert meira um ástarsorgina enda býður þjáningin upp á mun fleiri litasamsetningar en hamingjan. Brynhildur Björnsdóttir söngkona og Jökull Jónsson píanóleikari munu því fagna ástarsorginni á degi Valentínusar 14. febrúar og flytja nokkra vel valda hjartabrotssmelli. Þá verður einnig farið yfir nokkrar góðar aðgerðir til að komast yfir ástarsorgir og almennt reynt að kafa í fyrirbærið ást en svo heppilega vill til að Brynhildur er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í þeim efnum. Öll hjartanlega velkomin, hvort sem er eitt, tvö eða sjö, meðan húsrúm leyfir, til að fagna ástinni í öllum sínum myndum.
Miðar verða seldir við innganginn og er miðaverð 3500 krónur.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Café Rósenberg, Vesturgötu 3, Vesturgata 2B, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











