Biggi Maus og Stina Ágústsdóttir

Thu Apr 23 2026 at 09:00 pm to 11:30 pm UTC+00:00

Hafnarstræti 96, 600 Akureyri, Iceland | Akureyri

Gr\u00e6ni Hatturinn
Publisher/HostGræni Hatturinn
Biggi Maus og Stina \u00c1g\u00fastsd\u00f3ttir
Advertisement
BIGGI MAUS & STÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR
Sumarfögnuður á Græna Hattinum!
Sannkölluð tónlistarveisla verður haldin í tilefni sumarkomu á Græna Hattinum 23. apríl n.k.
Þetta kvöld leiða tvö af okkar áhugaverðustu tónlistaratriðum saman hesta sína: Stína Ágústsdóttir og Biggi Maus & MeMMM. Búast má við gríðarlega fjölbreyttri dagskrá þar sem farið verður úr lifandi rokknýsköpun í mýkri popp og indie-jazz með dramatískum ballöðuinnskotum.
Stína Ágústsdóttir, ein fremsta jazzpoppsöngkona landsin kemur til Akureyrar með sína óviðjafnanlegu rödd og nýtt efni í farteskinu.
Á tónleikunum flytur Stína lög af sinni nýjustu plötu, Yours Unfaithfully, auk nokkurra laga af fyrri plötum þar sem hún blandar saman jazzi, poppi og indie á einstakan hátt. Einnig mun nýútkomna ballaðan „Broken“ fá að hljóma í lifandi flutningi í fyrsta sinn.
Stína hefur fengið fjölda tilnefninga til tónlistarverðlauna og hefur starfað og búið í Montreal í Kanada, í Reykjavík og í Stokkhólmi þar sem hún er búsett núna. Tónleikar Stínu hafa fengið lofsamlega dóma víða í Skandinavíu og Akureyringar muna e.t.v. eftir henni flytja Stairway to Heaven á Rokkland 30 ára tónleikunum sem voru í Hofi í október s.l.
Stína vinnur nú hörðum höndum að næstu útgáfum, sem verða þónokkrar á árinu, og aldrei að vita nema eitthvað splunkunýtt efni fái að fljóta með á tónleikunum.
Með Stínu leika Andreas Hourdakis (gítar) og Valdimar Olgeirsson (bassi).

Biggi Maus & MeMMM
Birgir Örn Steinarsson og ný hljómsveit hans hafa nú starfað saman í um tvö ár undir nafninu Biggi Maus & MeMMM. Sveitin leikur lög frá öllum tónlistarferli Bigga með áherslu á nýsköpun með lifandi flutning í beinum tengslum við sjálfa uppsprettuna. Hvort sem er í útsetningum á eldri tónlist eða nýrri. Engir tveir tónleikar sveitarinnar eru eins. Í fyrra gaf sveitin út sín fyrstu tvö lög (Bandalag dauðra dúfna og Blóðmjólk) og kom fram á tónleikum víða. Þessa daganna vinnur sveitin að sinni fyrstu breiðskífu og brennur á fingurgómunum að koma fram sem oftast.
Meðlimir MeMMM eru;
Hallgrímur Jónas Ómarsson - gítar.
Stefán Gunnarsson - bassi.
Valgarður Óli Ómarsson - trommur.
Þorsteinn Kári Guðmundsson - synthar & gítar.
Advertisement

Event Venue

Hafnarstræti 96, 600 Akureyri, Iceland, Hafnarstræti 96, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Akureyri

Sumardagurinn fyrsti \u201eVarmahl\u00ed\u00f0arfer\u00f0\u201c
Thu, 23 Apr at 11:30 am Sumardagurinn fyrsti „Varmahlíðarferð“

Krókeyri 2, 600 Akureyri, Iceland

Danskv\u00f6ld og \u00f3keypis prufut\u00edmi \u00ed salsa
Thu, 23 Apr at 08:00 pm Danskvöld og ókeypis prufutími í salsa

Vamos AEY - Kaffihús og Bar

Mannakorn | Akureyri
Fri, 24 Apr at 08:00 pm Mannakorn | Akureyri

Menningarhúsið Hof

Hvanndalsbr\u00e6\u00f0ur
Fri, 24 Apr at 09:00 pm Hvanndalsbræður

Hafnarstræti 96, 600 Akureyri, Iceland

Pop up salsa n\u00e1mskei\u00f0 \u00e1 H\u00fasav\u00edk
Sat, 25 Apr at 01:00 pm Pop up salsa námskeið á Húsavík

Íþróttahöllin Húsavík

R\u00f3t - s\u00fdningar \u00e1 Akureyri
Sat, 25 Apr at 04:00 pm Rót - sýningar á Akureyri

Samkomuhúsið Akureyri

Vorfagna\u00f0ur, Karlak\u00f3rs \u00deingeyinga - Hreimur
Sat, 25 Apr at 08:00 pm Vorfagnaður, Karlakórs Þingeyinga - Hreimur

Ýdalir, 641 Norðurþing, Ísland

Akureyri is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Akureyri Events