Barre fit með Dóru Júlíu í Listasafni Íslands ?

Sat Nov 29 2025 at 09:00 am to 10:00 am

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Listasafn \u00cdslands \/ National Gallery of Iceland
Publisher/HostListasafn Íslands / National Gallery of Iceland
Barre fit me\u00f0 D\u00f3ru J\u00fal\u00edu \u00ed Listasafni \u00cdslands ?
Advertisement
Barre fit í Listasafni Íslands! ?
Barre þjálfarinn, plötusnúðurinn og stemningskonan Dóra Júlía stendur fyrir morgunstund á Listasafni Íslands þar sem frábær hreyfing og stórkostleg list mætast. Dóra Júlía hefur lengi þjálfað bæði barre og pilates í World Class og kennir skemmtilegar æfingar sem styrkja, liðka og lengja alla vöðva líkamans.
Tíminn fer fram í einstöku rými innan um myndbandsverk Steinu Vasulka. Steina er sannur frumkvöðull í stafrænni miðlun og hefur haft djúpstæð áhrif á margar kynslóðir listafólks um heim allan.
Á yfirllitssýningunni Steina: Tímaflakk sem nú stendur yfir í öllum sölum Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur (Hafnarhúsi) er farið yfir verk listakonunnar allt frá upphafi, með áherslu á hlutverk leiks og hljóðs í hinum framsæknu sköpunarverkum hennar.
Æfingin er frá klukkan 9-10 laugardaginn 29. nóvember. Skráning fer fram á emailinu [email protected] og kostar 3.500 krónur.
Hlökkum til að sjá ykkur ?
Advertisement

Event Venue

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland, Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: