Advertisement
Komdu með fjölskylduna á frábæra tónleika sérstaklega ætlaða yngstu tónlistarunnendunum! Viðburðurinn fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur sunnudaginn 17. nóvember kl. 15, og best af öllu – aðgangur er ókeypis! 🎉Við munum leika lög sem krakkarnir þekkja úr uppáhalds teiknimyndum og sjónvarpsþáttum sínum, ásamt því að kynna þau fyrir töfrum mismunandi hljóðfæra.
Það verður líka gleðisprengja með kynni tónleikanna, Lalla Töframanni, sem kann listina við að blanda saman töfrum og húmor til að heilla alla – stóra sem smáa! ✨
Að lokum fá börnin sjálf tækifæri til að taka við keflinu af stjórnanda Lúðrasveitar verkalýðsins, sem er Karen Sturlaugsson og stjórna lúðrasveitinni sjálf!
Sannkölluð ævintýraupplifun sem enginn vill missa af! 🎶
Helstu styrktaraðilar Lúðrasveitar verkalýðsins árið 2024 eru BSRB, Efling, Kennarasamband Íslands, VR, ASÍ og Reykjavíkurborg.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnargata 11, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland