Bandvefnaðarnámskeið í Skagafirði

Sat, 08 Aug, 2026 at 09:00 am to Sun, 09 Aug, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

Byggðasafn Skagfirðinga - Skagafjörður Heritage Museum | Saudarkrokur

Bygg\u00f0asafn Skagfir\u00f0inga - Skagafj\u00f6r\u00f0ur Heritage Museum
Publisher/HostByggðasafn Skagfirðinga - Skagafjörður Heritage Museum
Bandvefna\u00f0arn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed Skagafir\u00f0i
Advertisement
Bandvefnaðarnámskeið í Skagafirði; útskurður og vefnaður
Dagana 8.-9. ágúst næstkomandi standa Byggðasafn Skagfirðinga, Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna og Heimilisiðnaðarsafnið fyrir námskeiði í bandvefnaði. Til okkar er að koma sænsk handverkskona, Kerstin Neumüller og ætlar hún að kenna þátttakendum bæði að tálga og skera út bandgrind og undirstöðuatriði bandvefnaðar. Námskeiðið stendur í tvo daga, alls 14 klst. og verður fyrirkomulag námskeiðsins sem hér segir:
Dagur 1) Skurðardagur: skref-fyrir-skref leiðsögn um hvernig á að skera út bandgrind (e. heddle), þátttakendur skera út sína eigin og skreyta ef tími gefst.

Dagur 2) Vefnaðardagur: Þátttakendur vefa á sína eigin grind (eða fá lánaða hjá leiðbeinanda). Kerstin kennir undirstöðuatriði bandvefnaðar, en grunnatriðin sem kennd eru á námskeiðinu er hægt að yfirfæra á stærri vefstóla svo aðferðin er góður grunnur fyrir þá sem hafa almennan áhuga á vefnaði.

Kennslan hentar bæði byrjendum í skurði og vefnaði sem og reyndara handverksfólki. Rétt er að benda á að þátttakendur þurfa að hafa grunnstyrk í höndum til að vinna að útskurði fyrri daginn.
Leiðbeinandi: Kerstin Neumüller. Meira má lesa um hana á vefsíðunni www.kerstinneumuller.com
Lengd: 2 dagar/14 klst. 8-9. ágúst 2026. (Nánari tímasetning verður auglýst síðar)
Staðsetning: Byggðasafn Skagfirðinga/Skagafjörður (nánari staðsetning verður auglýst síðar).
Hámarksfjöldi þátttakenda: 15 manns.
Skráningargjald: 5000 kr. skráningargjald sem ekki fæst endurgreitt. Námskeiðið er styrkt af Safnasjóði og því er námskeiðið þátttakendum að kostnaðarlausu utan skráningargjalds.
Innifalið í námskeiði eru öll verkfæri til útskurðar og garn til vefnaðar, hádegisverður og kaffiveitingar.
LOKAÐ HEFUR VERIÐ FYRIR SKRÁNINGU - NÁMSKEIÐIÐ ER FULLBÓKAÐ.
Þátttakendur þurfa að koma með: reglustriku, blýant og strokleður, glósubók, skæri og tréliti.
*Athugið að nemendur þurfa sjálfir að sjá um gistingu og mat utan námskeiðs.
**Byggðasafn Skagfirðinga minnir á fræðslusjóði stéttarfélaganna og niðurgreiðslu þeirra vegna þátttöku á námskeiðum. Kynntu þér réttinn hjá þínu stéttarfélagi.
Fyrirspurnir: Inga Katrín D. Magnúsdóttir svarar frekari fyrirspurnum á netfanginu [email protected]
Námskeiðið er styrkt af Safnasjóði og þakka Byggðasafn Skagfirðinga, Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna og Heimilisiðnaðarsafnið Safnasjóði kærlega fyrir veittan stuðning.
Advertisement

Event Venue

Byggðasafn Skagfirðinga - Skagafjörður Heritage Museum, Glaumbær, Glaumbær, Glaumbær, 561 Sveitarfélagið Skagafjörður, Ísland, Saudarkrokur, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: