Advertisement
Bakstursmaraþon 2025 fer fram 6.-7.september í minningu Guðna Alexanders Snorrasonar, sem yrði 21 árs gamall 9.september næstkomandi. Guðni lést hins vegar þann 31.janúar árið 2025, en Guðni var fósturbarn okkar hjóna og bróðir barnanna okkar. Það verður því erfitt að fagna fyrsta afmælisdeginum hans án hans en við viljum snúa því upp í eitthvað gleðilegt og halda nafni hans á lofti og hans sögu með því að baka kruðerí og kræsingar.Guðni var eitt af þessum börnum sem gleymast í kerfinu, sem eru því miður alltof mörg. Vonandi náum við að hrista við einhverju og einhverjum með því að baka með ást og umhyggju að vopni.
Við bökum því fyrir Guðna og söfnum um leið fyrir gott málefni. Að þessu sinni ætlum við að baka fyrir Bergið headspace - bergid.is. Við erum sammála um að sú starfsemi sé algjörlega frábær, en þangað geta krakkar á aldrinum 12 til 25 ára leitað og fengið ráðgjöf og stuðning. Síðast héldum við bakstursmaraþon árið 2016 og þá söfnuðum við hálfri milljón rúmri fyrir Kraft.
En hvernig virkar þetta maraþon? Þetta er ósköp heimilislegt og einfalt. Hér verður bakað allan sólarhringinn undir verkstjórn bakstursbloggsins Blaka - blaka.is. Húsið okkar er opið í þennan sólarhring og allir eru velkomnir að koma að fá sér kaffi og með’í. Ef örtröðin er mikil getur verið smá bið í gúmmulaði en það gerir ekkert til. Þeir sem eru aflögu færir styrkja svo málefnið og allt sem safnast rennur í Bergið. Þeir sem geta ekki styrkt með fjármunum eru líka hjartanlega velkomnir því að mæta er stuðningur í sjálfu sér.
Bakstursmaraþonið er í góðu samstarfi við Hagkaup, Ormsson og Ölgerðina, en Hagkaup sér um allt hráefni frá A til Ö, Ormsson lánar okkur ómissandi tæki eins og Moccamaster kaffivélar og vöfflujárn og Ölgerðin sér um drykki.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Melgerði 21, 200 Kópavogsbær, Ísland, Melgerði 21, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland