Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 1. apríl kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum leiða saman hesta sína tveir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar, þeir trompetleikarinn Ari Bragi Kárason og píanóleikarinn Eyþór Gunnarsson. Þrátt fyrir að Ari Bragi sé búsettur í Danmörku, þar sem hann starfar með hinu virta danska útvarpsbigbandi (Danish Radio Big Band), hafa þeir Eyþór haldið nánu samstarfi í fjölda ára bæði með tilkomu Ara Braga sem meðlimi hljómsveitarinnar Mezzoforte og einnig með samstarfi þeirra með hljómsveitinni Annes. Á milli þeirra ríkir djúpur tónlistarlegur skilningur og sterkur þráður. Á tónleikunum munu þeir félagar leggja áherslu á efni af nýjustu plötum sínum, Melodies for You og Melodies for Us, sem báðar komu út á síðasta ári við frábærar undirtektir. Gestir geta búast við kvöldi þar sem fallegar laglínur, dýpt og leikgleði ráða för.Ari Bragi Kárason and Eyþór Gunnarsson
Two of Iceland’s most prominent musicians, trumpeter Ari Bragi Kárason and pianist Eyþór Gunnarsson, will join forces for this special concert. Although Ari Bragi is based in Denmark, where he performs with the prestigious Danish Radio Big Band, he and Eyþór have maintained a close collaboration for years. Their musical bond has been forged through Ari Bragi’s membership in the legendary band Mezzoforte, as well as their joint work in the acclaimed quintet Annes. Between the two of them exists a profound musical understanding and a powerful, intuitive connection. The concert will focus on material from their latest albums, Melodies for You and Melodies for Us, both released last year to critical acclaim. Guests can look forward to an evening where beautiful melodies, depth, and a joyful spirit of play take center stage.
Ari Bragi Kárason, trumpet
Eyþór Gunnarsson, piano
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4900.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í lok maí. Múlinn er að hefja sitt 29. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4900 og 3600 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement
Event Venue
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






