Advertisement
Við æskuvinirnir komum saman á sviði með lögin okkar og nýja tónlist í farteskinu. Söngvaskáldakvöld í góðum anda í Smekkleysu.Agnar Eldberg spilar í fyrsta skiptið ásamt hljómsveit en hann hefur verið að vinna í sinni fyrstu sóló plötu sem von er á að komi út í ár. Hann hefur fengið tilnefningar fyrir sína lagasmíði þónokkrum sinnum í gegnum árin ásamt hljómsveitinni Lights on the highway en núna síðast 2024 fyrir sitt eigið lag Gardening. Tónlistina mætti kalla einhverskonar psych-indie-folk-rock en áhrifa má nema víðan að. Honum til líðs spilar Ragnar Steinsson(Botnleðja ofl) Erling Bang(Fufanu, I Adapt, Kaktus ofl) Og KGB(Bob Justman, Ensími, Botnleðja ofl). Saman spila þeir undir nafninu “Eldberg and the Elements”
Krummi kemur fram og spilar sín eigin lög ásamt hljòmsveit sinni Krákurnar. Hann kynnir nýja tónlist af næstkomandi plötu sinni sem er væntanleg í haust. Krummi gaf nýverið út lagið „Smile Till It Ends“ ásamt glæsilegu tónlistarmyndbandi sem hefur vakið mikla athygli undanfarið.
Frítt inn og góður fílingur 🖤
Advertisement
Event Venue
Hverfisgata 32, Hverfisgata 32, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











