Advertisement
Ísabrot – jöklar í íslenskri myndlist, útgáfuhóf og uppskera.Verið hjartanlega velkomin á útgáfuhóf og uppskeruhátíð! Listasafn Íslands hlaut hæsta styrkinn úr Barnamenningarsjóði fyrir verkefnið Ísabrot þar sem unnið var með listamönnum að þverfaglegum skapandi smiðjum í samstarfi við skóla um land allt síðastliðið skólaár. Valin listaverk sem tengjast jöklum voru einnig tekin fyrir með aðferðum Sjónarafls í byrjun hverrar smiðju.
Afrakstur verkefnisins kemur nú út í veglegri bókfyrir kennara þar sem listasmiðjunum er miðlað ásamt fróðleik um listaverkin sjálf.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Safnahúsið - The House of Collections, Hverfisgata 15, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland