Advertisement
Tónlist Skúla Sverrissonar er í forgrunni þessara tónleika en Skúli á að baki magnaðan feril sem tónskáld og bassaleikari. Tónlist Skúla býr yfir tærum einfaldleika sem höfðar til breiðs hlustendahóps en nýstárleg meðhöndlun hans á hljómum, takti og laglínum gerir verkin jafnframt einstaklega bitastæð og djúp.Hljóðheimur Skúla er stór, allt að því sinfónískur, og hentar því hlýjum og voldugum hljóðheimi Salarins einstaklega vel. Hér stígur Skúli fram ásamt tveimur af sínum nánustu samstarfsmönnum, þeim Ólöfu Arnalds og Davíð Þór Jónssyni sem bæði eru í hópi fjölhæfustu tónlistarmanna landsins.
Á undan tónleikunum, klukkan 13:00 verður boðið upp á lifandi tónleikaspjall í fordyri Salarins þar sem skyggnst verður í efnisskrá dagsins.
Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir tónleikaröðina Tíbrá.
---
Tíbrá 2024 - 2025
Sunnudaginn 29. september kl. 13:30
Garún, Garún: John Speight heiðraður
Sunnudaginn 27. október kl. 13:30
Þorpið sefur
Hildigunnur Einarsdóttir & Guðrún Dalía Salómonsdóttir
Sunnudaginn 30. nóvember kl. 13:30
Óvænt svörun
Cauda Collective
Sunnudaginn 26. janúar kl. 13:30
Ég heyri þig hugsa
Skúli Sverrisson, Ólöf Arnalds & Davíð Þór
Sunnudaginn 23. febrúar kl. 13:30
Tímans kviða
Píanókvartettinn Negla
Sunnudaginn 30. mars kl. 13:30
Í draumheimum
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir og Eva Þyri Hilmarsdóttir
Sunnudaginn 27. apríl kl. 13:30
Mánasilfur
Björg Brjánsdóttir, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir og Richard Schwennicke
Sunnudaginn 18. maí kl. 13:30
Vistarverur
KIMI tríó
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland,Kópavogur, Kopavogur, Iceland
Tickets