Advertisement
Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu skáldsögunnar Kúnstpása eftir Sæunni Gísladóttur með okkur í bókabúð Sölku föstudaginn 21. mars kl. 17. Léttar veitingar, bókin að sjálfsögðu á útgáfutilboði og talsverðar líkur á árituðum eintökum. Við hlökkum til að sjá ykkur!Um bókina:
Heimsborgarinn Sóley er nýútskrifaður hljómsveitarstjóri á framabraut í Leipzig sem ætlaði alls ekki að flytja strax aftur heim til Íslands. En þegar heimsfaraldur geisar og öllum tónleikahúsum Evrópu er skellt í lás samþykkir hún að koma heim og reka bókabúð afa síns sumarlangt í heillandi smábæ á hjara veraldar. Og ef þessi óvænta kúnstpása skapaði ekki nógu mikla óreiðu í lífi Sóleyjar bæta kynnin af leiðsögumanninum Óskari sannarlega ekki úr skák.
Um miðja síðustu öld stígur unga ekkjan Sigríður af skipsfjöl í sama smábæ. Hún ætlar að opna verslun í karlaveldi með mótlætinu sem því fylgir. Hún á þó eftir að komast að því að konur eru konum bestar og að það er alltaf ljós við enda ganganna.
Kúnstpása er fyrsta skáldsaga Sæunnar Gísladóttur. Í henni fléttast saman líf og örlög tveggja ungra kvenna á ólíkum tímum. Óvænt tækifæri banka upp á og ástin kveður sér hljóðs þvert á allar fyrirætlanir.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Salka, Hverfisgata 89-93,Reykjavík, Iceland