Advertisement
Þessa kvöldstund ætla þeir Herbert Már og Kristján Ársæll að sameina krafta sína og leiða hópinn í töfrandi ferðalag öndunar og tónheilunar.Við byrjum athöfnina með því að bjóða þeim sem það vilja rapé og bolla af hreinu cacao
Það hjálpar okkur að horfa inn á við og fara dýpra í ferðalaginu.
Kristján leiðir hópinn í öndun.
En öndun er kraftaverka verkfæri hvort heldur þú viljir sleppa tökum af einhverju eða kalla meira af góðri orku inn í líf þitt
Í önduninni komum við til með að opna dyr undirmeðvitundarinnar þar sem við gætum losað um gömul neikvæð hugsanamynstur og bældar og óunnar tilfinningar.
Einnig gætum við fundið fyrir meiri tengingu við okkur sjálf.
Svo kemur Herbert til með að taka við hópnum.
Í tónheiluninni getum við svo unnið úr og melt það sem hugsandi hugur okkar á stundum erfitt með að finna farveg.
Herbert spilar á tvö gong sem vinna á sitthvorri tíðninni en það eru 36'' Pluto planetery og 32'' creation of life. Vinna þau bæði í dýpinu og opna undirmeðvitundina ásamt því að jarðtengja.
En spilar hann einnig á crystal skálar, flautu og fleiri hljóðfæri
Við viljum árétta það að við sjáum ekki um heilunina heldur eru það þið sjálf við höldum rýmið svo að þið getið fengið tækifæri til að mæta því sem líkami ykkar veit að hann þarf að vinna úr.
Við gefum hausnum frí og leifum líkama okkar að heila sig.
Fólk hefur hvílst betur og dýpra eftir upplifun sem þessa.
Ef þú ert að glíma við eitthvað af eftirfarandi og ætlar að koma þá endilega sendu okkur línu áður.
Hjarta og/eða æðavandamál
Saga um blóðtappa
Flogaveiki eða flogaköst
Hjartaáfall síðastliðinn 5 ár
Nýlegar aðgerðir
Hár blóðþrýstingur
Ólétta.
Mælum við með því að vera ekki búinn að borða þunga máltíð áður en mætt er og halda kaffi drykkju í lágmarki.
Mæta í þægilegum fötum og með vatnsbrúsa meðferðis.
Tíminn kostar 8000 kr og stendur í umþaðbil 2-2,5 klst
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Síðumúli 6, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Síðumúli 6, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland