Advertisement
Walk for freedom 19.okt 2024 kl.14:00Gengið verður frá Hallgrímskirkju að Alþingi.
Frelsisgangan er alþjóðlegur viðburður til að auka vitneskju fólks um ástandið í heiminum. Þúsundir manna út um allan heim ganga saman þennan dag.
Þetta er sameiginleg yfirlýsing og tjáning okkar til að sjá mansal og þrældóm afnumið. Þeir sem að taka þátt mynda einfalda röð sem gengur saman í miðbænum.
Þögul ganga þar sem við látum frelsi annara skipta máli, sýnum í verki hvernig heim við viljum sjá.
Heim þar sem mannslíf er ekki metið til fjár. Heim þar sem réttlæti, mannleg reisn og frelsi sigrar. Þín skref skipta máli, þín rödd skiptir máli, þú skiptir máli!
Gangan fer fram í yfir 55 löndum og gengnar eru yfir 500 göngur.
Tölfræði um þrældóm úr heiminum í dag.
Það eru um 40,3 milljónir manna, kvenna og barna föst í þrældómi í heiminum í dag og aðeins 1-2% fórnarlamba bjargað.
Það er talið að yfir 700 manns lifi við þrældóm og mansal á Íslandi í dag, flestir frá austur-Evrópu, Balkanlöndum, suður-Ameríku og austur-Asíu.
A21 eru alþjóðleg samtök sem vinna gegn mansali og þrælahaldi. Einu sinni á ári er haldin ganga “Walk of freedom” og verður hún 19.október núna í ár.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland