Advertisement
Hin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar verður haldin í fertugasta sinn á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi 8. og 9. maí 2025. Í ár verður ráðstefnan haldin í samvinnu við Landssamtökin Þroskahjálp. Yfirskrift ráðstefnunnar er Fötluð börn og fjölbreyttur menningar- og tungumálabakgrunnur – áskoranir og tækifæri.
Á ráðstefnunni verður varpað ljósi á stöðu fatlaðra barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Sjónum verður beint að áskorunum og tækifærum í þjónustu við þennan hóp í víðu samhengi. Markmiðið er að draga fram ólík sjónarhorn, úr fræða- og reynsluheimi, og horfa til framtíðar með það fyrir augum að mæta enn betur fjölbreyttum þörfum.
Takið dagana frá, nánari upplýsingar koma fljótlega!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland