Advertisement
Cantoque Ensemble heldur tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík á Óperudögum 2024 þar sem á efnisskránni verða margar af fegurstu perlum íslenskrar tónlistar fyrir kór án undirleiks. Flutt verða verk eftir Jón Nordal, Þorkel Sigurbjörnsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson og fleiri. Kórinn skipa að þessu sinni Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Þórunn Vala Valdimarsdóttir sópran, Hildigunnur Einarsdóttir alt, Lilja Dögg Gunnarsdóttir alt, Helgi Steinar Helgason tenór, Þorkell Sigfússon tenór, Hafsteinn Þórólfsson bassi og Pétur Oddbergur Heimisson bassi. Hópurinn heldur svo í kjölfarið upp í tónleikaferð til Danmerkur þar sem haldnir verða tvennir a capella tónleikar og svo mun hópurinn taka þátt í Requiem eftir Jakob Buchanan í Árósum.
Miðaverð er 4900kr
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Fríkirkjan við Tjörnina, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets