Advertisement
KIMI tríó frumflytur verk eftir Þuríði Jónsdóttur og Kolbein Bjarnason.KIMA tríó skipa Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, mezzósópran, Katerina Anagnostidou, slagverksleikari og Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmóníkuleikari. Á efnisskrá eru frumflutningur á Livia‘s Room eftir Þuríði Jónsdóttur og nýju verki eftir Kolbein Bjarnason.
KIMI hefur vakið verðskuldaða eftirtekt og viðurkenningu fyrir ferskt og áhugavert efnisval en þau hafa starfað náið með fjölda tónskálda auk þess að hafa einbeitt sér að eigin útsetningum á þjóðlagatónlist.
Hér frumflytur hópurinn tvö spennandi verk sem bæði hverfast um persónur frá dögum Rómarveldis. Í Livias Room eftir Þuríði Jónsdóttur er það keisaraynjan Lívía Drúsilla, fyrsta keisaraynja Rómarveldis og eiginkona Ágústusar keisara en í verki Kolbeins er það nautnaseggurinn og stríðsmaðurinn Markús Antóníus, hægri hönd Sesars og erkióvinur Ágústusar keisara. Þessar tvær ólíku persónur skapa áhugaverðar hliðstæður sem endurspegla ólíka stöðu kynjanna, bæði á tímum Rómarveldis sem og í sögubókunum. Verkin sýna þannig hvernig varpa má nýju ljósi á fornan arf sem vekur áhorfendur til umhugsunar og hvetur til frekari forvitni.
Verk Þuríðar byggir á leikverki eftir norska leikskáldið og rithöfundinn Lene Therese Teigen en textinn í verki Kolbeins er sóttur til Konstantinos Kavafis, eins helsta ljóðskálds Grikklands.
Á undan tónleikunum, klukkan 12:30 verður boðið upp á spjall um efnisskrá tónleikanna. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.
Lista- og menningarráð styrkir tónleikaröðina Tíbrá.
---
Ný Tíbrárröð Salarins í Kópavogi hefur verið kynnt til leiks og má með sanni segja að starfsárið 2024 – 2025 verði glæsilegt, fjölbreytt og spennandi. Stór hópur tónlistarfólks í fremstu röð flytur litríka dagskrá þar sem hljómar splunkuný tónlist í bland við sígild meistaraverk og fáheyrðar perlur.
Áskriftasala á Tíbrá hefst 7. júlí, kl. 13:30. 50% afsláttur fæst af miðaverði ef keypt er áskrift á alla tónleikana, aðeins 18.000 kr fyrir átta magnaða tónleika.
--
Tíbrá 2024 - 2025
29. september
Garún, Garún
John Speight heiðraður
27. október
Þorpið sefur
Hildigunnur Einarsdóttir &
Guðrún Dalía Salómonsdóttir
30. nóvember
Óvænt svörun
Cauda Collective
26. janúar
Ég heyri þig hugsa
Skúli Sverrisson, Ólöf Arnalds & Davíð Þór
23. febrúar
Tímans kviða
Píanókvartettinn Negla
30. mars
Í draumheimum
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir og Eva Þyri Hilmarsdóttir
27. apríl
Mánasilfur
Björg Brjánsdóttir, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir og Richard Schwennicke
18. maí
Vistarverur
KIMI tríó
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland,Kópavogur, Kopavogur, Iceland
Tickets