Advertisement
Við bjóðum kennurum og skólastjórnendum til ráðstefnu, föstudaginn 14. nóvember kl. 12.30 í Sögu, húsi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.Þátttaka er ókeypis.
Við fræðumst um hvað ný íslensk rannsókn leiðir í ljós um stöðu barna innflytjenda í skólakerfinu, hvernig börnin læra að nota mörg tungumál og hvað kennarar þeirra og foreldrar geta gert til að styðja við nám þeirra og góða líðan í skóla. Einnig fáum við nýjustu upplýsingar um stuðning opinberra aðila við menntun, mótttöku og menningu þessara barna. Eftir klukkutímalanga sameiginlega dagskrá stendur valið milli 12 spennandi vinnusmiðja þar sem fram fer stutt fræðsla en áhersla er á umræður um mörg athyglisverð málefni á þessu sviði. Þátttakendur velja milli vinnusmiðja og skrá sig fyrir fyrri og seinni umferð á vinnusmiðjurnar, athugið að vinnusmiðjurnar verða ekki í streymi, skráning hér: https://forms.office.com/e/53N3VSyhNm
Skráning í streymi á aðalerindi er hér: https://forms.office.com/e/d3wvB3BjH0
Rannsóknarhópur um tungumálastefnu og starfshætti fjölskyldna innflytjenda á Íslandi og áhrif þeirra á menntun (LPP) stendur fyrir ráðstefnunni ásamt MEMM – menntun, mótttaka, menning – sem er þróunarverkefni leitt af mennta- og barnamálaráðuneyti í samvinnu við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Reykjavíkurborg.
Dagskrá
➡️ 12.30-13.30 AÐALERINDI Í SAL S-114 Í SÖGU OG Í STREYMI
📍Meginniðurstöður rannsóknar á tungumálastefnum fjölskyldna innflytjenda og áhrifum þeirra á menntun barna (LPP-rannsóknin), Hanna Ragnarsdóttir prófessor HÍ
📍Stuðningur kennara við fjöltyngi nemenda og mikilvægi tengsla við fjölskyldur þeirra (LPP-rannsóknin), Anna Katrín Eiríksdóttir doktorsnemi HÍ og Kristín Jónsdóttir dósent HÍ
📍Nemendur móta fjöltyngda sjálfsmynd með stuðningi foreldra sinna (LPP-rannsóknin), Kriselle Suson doktorsnemi HÍ og Hanna Ragnarsdóttir prófessor HÍ
📍MEMM – til að tryggja virka þátttöku allra barna og gæðamenntun óháð tungumála- og menningarbakgrunni, Fríða B. Jónsdóttir, samhæfingarstjóri MEMM
📍Hvar má finna námsefni og allskyns stuðningsefni? Útgáfa á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Katrín Friðriksdóttir, sviðsstjóri hjá MMS
➡️ 13.30-14.00 KAFFI OG NÁMSGAGNASÝNING FRÁ MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU
➡️ 14.00-14.50 FYRRI VINNUSMIÐJUR – FRÆÐSLA OG UMRÆÐUR ÞÁTTTAKENDA
📍LPP niðurstöður um móðurmálskennslu á Íslandi og Móðurmál Samtök um tvítyngi, Oksana Shabatura, Ína Holoyad og Kriselle Suson
📍Fjöltyngd börn og áhrif þeirra á tungumálanotkun sína heima fyrir og í skólum (LPP-rannsóknin), Hanna Ragnarsdóttir
📍Orð eru ævintýri - útgáfa fyrir leikskóla, Emilía Rafnsdóttir og Þóra Sæunn Úlfsdóttir
📍Samskipti og samvinna í grunnskóla, Þorbjörg Halldórsdóttir og Erla Guðrún Gísladóttir
📍Togstreita og tækifæri stjórnenda til að efla kennslu barna af erlendum uppruna (LPP-rannsóknin), Kristín Jónsdóttir
📍Töfrakista tungumálanna – fyrir leik- grunn- og framhaldsskóla, Kristín Vilhjálmsdóttir
➡️ 15.10-16.00 SEINNI VINNUSMIÐJUR – FRÆÐSLA OG UMRÆÐUR ÞÁTTTAKENDA
📍Starf brúarsmiða og stuðningur við foreldra með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, Abraham Hernandez Alducin og Salah Karim Mahnmood
📍Samstarf grunnskólakennara og foreldra fjöltyngdra barna (LPP-rannsóknin), Anna Katrín Eiríksdóttir
📍Jaðarsetning í nafni inngildingar, Helga Ágústsdóttir og Ragnheiður Valgerður Sigtryggsdóttir
📍Stikum af stað – stöðumat grunnskóla, Þorbjörg Halldórsdóttir og Berglind Hansen
📍Hæfnirammar leikskóla, Tinna Sigurðardóttir og Magdalena Elísabet Andrésdóttir
📍Hlutverk foreldra í máluppeldi og námi barna (LPP-rannsóknin), Kriselle Lou Suson Jónsdóttir
➡️ 16.00-17.00 LÉTTAR VEITINGAR OG SPJALL
👉 Nánari upplýsingar er að finna á vef viðburðarins: https://menntavisindastofnun.hi.is/is/vinnusmidjur-um-menntun-barna-med-fjolbreyttan-tungumalabakgrunn
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Saga - Hagatorg 1, 107 Reykjavík, Iceland, Hagatorg 1, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











