Advertisement
Langar þig að æfa samningatæknina þína og sjá betur hvað þarf að gera til að halda hlýnun jarðar fyrir neðan 1,5°C eða sem næst 2°C? Er nóg að fjárfesta í grænni orku til að ná loftslagsmarkmiðum? Getum við bætt orkunýtni til að draga úr hlýnun jarðar? Hvaða áhrif hafa tæknilausnir á borð við Carbfix? Getum við plantað nægilega mikið af trjám og hvað ef við gerumst öll grænmetisætur? Eða er kannski ómögulegt að koma í veg fyrir hamfarahlýnun.Viðreisn verður með vinnustofu þar sem þátttakendur gerast samningamenn fyrir ólíka hagsmunahópa og ríkja á COP sem leitast við að semja um lausnir. Lausnirnar eru síðan prófaðar í rauntíma með notkun „En-ROADS“ loftslagshermis sem var hannaður af MIT og Climate Interactive til að meta áhrif mismunandi aðgerða á loftslagsbreytingar, þannig að þátttakendur fá strax upplýsingar um áhrif þeirra aðgerða sem þeir semja um. EN-ROADS er kvikt kerfislíkan sem stjórnvöld og alþjóðastofnanir nota til að spá fyrir um áhrif ólíkra aðgerða á hlýnun jarðar – auk áhrifa á efnhag, heilsu og líffræðilegan fjölbreytileika. Markmiðið með vinnustofunni er að svara stóru spurningunni: Hvaða aðgerðir, ef einhverjar, duga til að ná loftslagsmarkmiðum?
Það er takmarkaður fjöldi sæta og því biðjum við þig um að skrá þig hér: https://vidreisn.is/vidburdur/viltu-taka-thatt-i-samningavidraedum-um-loftslagsmal/
Athugið að það er ekki nóg að skrá sig "going" hér á facebook.
Aðalsteinn Lúther Leifsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og varaþingmaður Viðreisnar leiðir vinnustofuna. Aðalsteinn kennir samningatækni í Háskólanum í Reykjavík og er áhugamaður um loftslagsmál. Hann hefur farið í þjálfun á vegum Climate Interactive til að leiða vinnustofur sem þessa.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík, Iceland, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets