Advertisement
Miðvikudaginn 2. okt frá kl. 19 - 21 verðum með Vínglasasmiðju í Höfuðstöðinni. Við málum á vínglös með sérstakri enamel málningu. Skemmtileg kvöldstund fyrir vini, fjölskyldu og hópa.Skráning er nauðsynleg á þessa smiðju: https://hofudstodin.com/product/vinglasasmidja-2-okt/
Verð fyrir fullorðna er 5.500kr. og börn 4.500kr. Innifalið er:
*Vínglas, gjafakassi undir glasið og allur efniviður.
*Einn drykkur af barnum eða Töfrakrap fyrir börnin. Happy hour tilboð allt kvöldið.
*Allir fara heim með sitt glas.
--
Höfuðstöðin er lista- og menningarhús í gömlu kartöflugeymslunum í Elliðaárdalnum. Þar má finna kaffihús, bar, gjafavöruverslun og sýninguna Chromo Sapiens eftir Hrafnhildi Arnardóttur / Shoplifter. Opið er virka daga frá kl. 10 - 18 og helgar frá kl. 11 - 17. Hægt er að leigja út Höfuðstöðina fyrir einkaviðburði og það eru skemmtilegar listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur alla laugardaga frá kl. 11 - 17 og á völdum frídögum.
www.hofudstodin.com
www.instagram.com/hofudstodin/
www.facebook.com/hofudstodin/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Höfuðstöðin, Rafstöðvarvegur 1, 110 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland