Advertisement
Tjörgunarnámskeið á Hólum í Hjaltadal 8-12. september 2025Dagana 8-12. september næstkomandi verður haldið tjörgunarnámskeið á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði. Hópur norskra handverksmanna er á leið til landsins til að leiðbeina og taka þátt í námskeiðinu, en viðfangsefni námskeiðsins verður að tjarga Auðunarstofu á Hólum. Kennari á námskeiðinu er Tor Meusburger, sem hefur tjargað allnokkrar stafakirkjur í Noregi.
Námskeiðið verður að mestu verklegt, en einnig verða kynningar á nauðsynlegum verkþáttum. Farið verður yfir verkferla tjörgunar timburhúsa, undirbúning, útbúnað og umbúnað við tjörgun, aðferðir og öryggisatriði.
Námskeiðið er samstarfsverkefni Vígslubiskupsembættisins á Hólum í Hjaltadal, Norsk håndverksinstitutt (The Norwegian Crafts Institute), Fortidsminneforeninger (The National Trust of Norway), Martinussen Tradition and Competence AS og Fornverkaskólans.
Þann 10. september verður jafnframt haldið opið málþing, milli kl. 18-20. Á málþinginu verður rætt um handverk, tjörgun, óáþreifanlegan menningararf og ýmislegt fleira. Málþingið verður ÖLLUM OPIÐ og við hvetjum áhugasama að koma og vera með.
Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Dagskrá (með fyrirvara um breytingar):
8. sept. / kl. 9-16: Fyrirlestur og verkleg vinna. Undirbúningur fyrir tjörgun
9-11. sept. / kl. 9-16: Tjörgun
10. sept: málþing (öllum opið)
12. sept./ kl. 9-12: Frágangur og samantekt námskeiðs.
Hvað þarf að hafa með: Fatnað eftir veðri, vinnuföt, hanska og góða skó.
Námskeiðsgjald: 20.000 kr. Gjaldið greiðist við skráningu. Athugið að skráningargjald fæst ekki endurgreitt. Hádegismatur verður í boði á staðnum, en hann er ekki innifalinn í námskeiðsgjaldi. Þátttakendur sjá sjálfir um mat og gistingu utan námskeiðs.
Skráning: Skráning á námskeiðið fer fram á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga: https://www.glaumbaer.is/is/fornverkaskolinn/tjorgunarnamskeid
Hámark þátttakenda: 5 (auk hópsins frá Noregi).
Fornverkaskólinn minnir á fræðslusjóði stéttarfélaganna og niðurgreiðslu þeirra vegna þátttöku á námskeiðum. Kynntu þér réttinn hjá þínu stéttarfélagi.
Fyrirspurnir: Inga Katrín D. Magnúsdóttir svarar frekari fyrirspurnum á netfanginu [email protected]
**Þeim er sækja námskeið Fornverkaskólans er bent á að huga að eigin tryggingum, en Fornverkaskólinn er ekki ábyrgur gagnvart slysum.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hólar, 551 Sveitarfélagið Skagafjörður, Ísland, Saudarkrokur, Iceland