Til ljóssins og lífsins

Sat Nov 01 2025 at 02:00 pm to 03:30 pm

Langholtskirkja | Reykjavík

Karlak\u00f3rinn F\u00f3stbr\u00e6\u00f0ur
Publisher/HostKarlakórinn Fóstbræður
Til lj\u00f3ssins og l\u00edfsins Líkt og fyrri ár eru tónleikarnir innblásnir af hefð allra sálna messu þar sem segja má að dyr opnist milli tveggja heima og leitar kórinn inn á við og býður upp á kyrrðarstund með ljúfum tónum sem veita áheyrendum tækifæri til að hugsa um hið fagra í lífinu, kærleika og frið og til ástvina sinna bæði lífs og liðinna.
Efnisskrá tónleikanna samanstendur af söngvum, bæði innlendum og erlendum, veraldlegum og trúarlegum sem eiga þó allir sameiginlegt að vera óður til lífsins, ljóssins og kærleikans og er rólegur upptaktur inn í dimmasta skammdegið.
Eyþór Árnason, skáld, leikari og landsþekktur sviðsstjóri, tekur þátt í tónleikunum og hefur frjálsar hendur milli laga. Eyþór gaf út sína fyrstu ljóðabók, Hundgá úr annarri sveit árið 2009 og hlaut fyrir hana Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Alls eru ljóðabækur Eyþórs sex til þessa og hefur hann verið tilnefndur til fjölda verðlauna.
Stjórnandi kórsins er Árni Harðarson og meðleikari Fóstbræðra að þessu sinni er Tómas Guðni Eggertsson organisti, píanisti og tónlistarstjóri Seljakirkju
Miðar fáanlegir á Tix.is, hjá kórmönnum og við inngang

Event Venue

Langholtskirkja, Sólheimar 11-13,Reykjavík, Iceland

Tickets
Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you: