Advertisement
Hvar sómir sígíld tónlist sér best? Á hljóðfæratónlist barokktímabils 17. og 18. aldar eitthvað erindi inn á næturklúbb? Á State of the Art verður þetta kannað með tónleikunum BAROKK Á KLÚBBNUM þann 12. október kl 21. Nokkur þekktustu verk tímabilsins verða flutt af barrokkhljómsveit í ljósa- og reykvéladýrð næturklúbbsins AUTO á Lækjargötu. Á sviði með strengja og semballeikurunum verður einnig athafnarstjóri trommuheila og rafhljóða sem mun leiða Vivaldi og Bach inn á slóðir 21. aldar og skapa tónavafning sem þú getur hvergi annarsstaðar heyrt en á State of the Art. Miðasala hefst innan skamms en passahafar á State of the Art hafa aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Lækjargata 2A, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Lækjargata 2A, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland