Advertisement
Nexus heldur upp á 50. ára afmæli D&D og nýju útgáfu D&D kerfisins með spunaspilaútgáfupartýi!Með spunaspilaútgáfupartýi meinum við að við viljum bjóða spilurum að prófa nýja D&D kerfið. Þau Ólafur Björn, Tinna Halls og Þorsteinn Sturla bjóða hæfileika sína sem stjórnendur og hjálpa okkur að taka fyrstu skrefin inn í nýja kerfið með ævintýrinu "Uni and the Hunt for the Lost Horn!"
Það verður frítt að spila og fyrst kemur fyrst fær gildir.
Skráning fer fram á staðnum og pláss eingöngu tryggt þeim sem mæta tímanlega.
Mæting er 18:00
Frekari upplýsingar:
Hlekkur að ábendinga/kvartana formi: https://forms.gle/kuy9FDanKAn6i2b27
Ef þú hefðir áhuga á að stjórna eigin ævintýri er það í boði, ef svo er hafðu eftirfarandi í huga.
Stjórnendur eru beðnir um að koma með allt sem þarf til að stjórna leiknum, s.s. tilbúnar persónur eða blöð og penna til persónusköpunar.
Stjórnendur verða beðnir um stutta lýsingu á ævintýrinu og nauðsynlega fyrirvara við ævintýrið svo spilarar geti tekið meðvitaða ákvörðun um hvaða spil henti þeim best.
Stjórnendur sem þyrstir í meiri reynslu eru sérstaklega velkomin til að spreyta sig á nýjum áskorunum og meðspilurum.
Þátttakendur eru beðnir um að koma með eigin teningasett. Þau fást líka á staðnum frá 999 kr.
Ætlast að fyrir spilið samræmist þátttakendur um mörk og fyrirætlun spilsins.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Nexus, Álfheimar 74, 104 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland