Advertisement
* English belowRit- og myndhöfundurinn Alexandra Dögg Steinþórsdóttir leiðbeinir krökkum við að skapa sín eigin skrímsli, allt frá hugmynd til fullskapaðs skrímslis. Börnin eru sérstaklega hvött til að skapa sitt skrímsli út frá eigin áhuga og reynslu. Við skoðum líka hvernig gaman er að vinna með hversdagsleg fyrirbæri og hvernig ímyndunaraflið getur breytt þeim í furðuverur.
Smiðjan er haldin í tengslum við sýninguna Skissur verða að bók.
Alexandra Dögg fæddist á Akureyri 1991 en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún er með diplóma í teikningu frá Myndlistaskólanum í Reykjavík og hefur myndlýst fyrir fjölda aðila, svo sem Bíó Paradís, Þroskahjálp, Reykjavíkurborg og ASÍ. Alexandra Dögg vinnur mest með vatns -og gouache liti.
Hennar fyrsta bók Mér líst ekkert á þetta kom út árið 2023 en Alexandra Dögg hefur skapað furðusögur og gert myndir frá barnsaldri.
Á sýningunni verður hægt að sjá allt efnið sem Alexandra Dögg vann að í sköpunarferli bókarinnar, frá fyrstu skissum yfir í lokaafurðina.
Author and illustrator Alexandra Dögg guides the children on how to make their own monster. They will go through the whole process from a rough sketch/idea to a full developed monster. The children are encouraged to create the monster from their own interests and experience.
This workshop is connected to the exhibition; Sketches become a book.
Nánari upplýsingar veitir/ For further information contact:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
[email protected] | 411 6100
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland