Advertisement
Ritið: Tímarit Hugvísindastofnunar og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum standa fyrir málþingi um læknahugvísindi þar sem sjónum verður meðal annars beint að sjúkdómum, sorg og samlíðan í bókmenntum. Haldið í Auðarsal í Veröld, miðvikudaginn 15. október kl. 16:00-18:00.Á málþingið mæta rithöfundar og skáld og lesa upp úr verkum sínum. Þá verður einnig hugað að tengslum læknisfræði og bókmenntafræði og í því skyni varpað ljósi á hvernig verið sé að nýta bókmenntatexta sem fjalla um veikindi, áföll, samskipti lækna og sjúklinga sem og sorg og sorgarúrvinnslu í heilbrigðiskerfinu, bæði til að efla samlíðan og auka skilning heilbrigðisstarfsfólks á lífi og reynslu skjólstæðinga sinna.
Málþingið tengist útgáfu Ritsins á þemahefti um læknahugvísindi og útgáfu bókarinnar Þegar mamma mín dó eftir Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur, rithöfund og doktorsnema við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Í bókinni, sem nýverið kom út hjá Mál og menningu, fjallar Sigrún Alba á persónulegan hátt um þær sterku tilfinningar sem togast á þegar dauðinn knýr dyra, auk þess að fjalla um það kerfi sem við höfum búið fólki sem á skammt eftir ólifað og það hlutskipti að fylgja nánum ættingja síðasta spölinn.
Læknahugvísindi eru þverfaglegt rannsóknasvið sem tengir saman þekkingu og innsæi ólíkra fræðigreina, þ.e. læknisfræða, hjúkrunarfræða og hugvísinda. Innan læknahugvísinda hefur gefist vel að nýta bókmenntir um sjúklinga, lækna, veikindi, sorg og sársauka sem umræðu- og þekkingargrundvöll því þær veita aðgang að tilfinningalífi fólks og þjáningu og varpa gjarnan ljósi á samskipti þess við heilbrigðisstéttina.
Dagskrá:
- Guðrún Steinþórsdóttir aðjúnkt við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði og ritstjóri Ritsins: „ó gjáin!/ milli eigin flensu og annarra": Um samlíðan, samskipti og bókmenntir.
- Ljóðalestur: Hanna Óladóttir, málfræðingur og ljóðskáld, segir frá og les úr ljóðabókum sínum Stökkbrigði, Kona fer í gönguferð og Bakland.
- Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor í íslenskum bókmenntum: „Riddarinn hallast við brotinn brand, bleik er hans unga kinn“: Um birtingarmyndir berkla í skáldskap
- Upplestur: Sigrún Alba Sigurðardóttir, rithöfundur og doktorsnemi við Mála- og menningardeild segir frá og les úr bók sinni Þegar mamma mín dó
- Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor í íslenskum miðaldabókmenntum: Um myrkur sem mæðir og sögur sem græða
- Ari Jóhannesson, læknir, rithöfundur og ljóðskáld: Undir leiðarstjörnu, frá kviku til kviku. Að flétta saman læknisfræði og bókmenntir
- Dagný Kristjánsdóttir, prófessor emerita í íslenskum nútímabókmenntum: „Gott að eldast?“
- Spurningar og umræður
Kynnir á málþinginu er Geir Sigurðsson, prófessor við Mála- og menningardeild og stjórnarmaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Í lok málstofunnar verður boðið upp á veitingar í Veröld. Auk þess verður hægt verður að kaupa bækur sem tengjast efni þingsins á tilboðsverði.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland