Advertisement
Húsið opnar 19:30 | Miðaverð 2.500 krFlutt verður klassísk tyrknesk tónlist kennd við Ottóman veldið og kallast í Tyrklandi Klassísk Tyrknesk Ottoman tónlist. Þessi tónlistarhefð nær árhundruði aftur í tímann og voru tyrknesku tónskáldin oft innblástur fyrir vestrænu tónskáldin m.a.
Mozart. Tónlistarhefð þessi inniheldur framandi hljóðfæri og munu flytjendur leika á hefbundin hljóðfæri í þessum stíl. Ásgeir Ásgeirsson hefur á undanförnum árum sótt tíma á tyrkneskt oud hjá nokkrum af færustu oud leikurum veraldar m.a. Yurdal
Tokca, Enver Mete Aslan, Zeynel Demirtas og Taxiarchis Georgoulis fyrstur íslenskra hljóðfæraleikara. Fædon Jóhannes Sinis (Phaedon Sinis) er bandarískur/grískur hljóðfæraleikari sem hefur numið og leikið þessa tónlist víðsvegar urm heiminn í áratugi en Fædon leikur á tyrkneska borðhörpu og tyrkneska hnéfiðlu. Hann er algjör hvalreki fyrir íslenskt tónlistarlif og er búsettur á Íslandi um þessar mundir. Á tónleikunum munu þeir leika klassísk verk úr þessari þessari tónlistarhefð en tónlist úr þessum ranni heyist mjög sjaldan á Íslandi og hvetjum við því forvitið fólk um að fjölmenna en síðast þegar þeir félagar komu fram í Megni var uppselt.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland, Óðinsgata 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland