Advertisement
Námskeiðið er í 4 vikur frá 9.feb.til 2.mars - Shamanísk ferðalag(Shamanic Journey),
Á námskeiðinu er leidd trommuhugleiðsla og hópurinn fer i gegnum djúpt
hugleiðsluástand með ásetning í huga.
Þú munt upplifa og öðlast reynslu þar sem undirmeðvitundin og
innsæið fær að flæða og ferðast til þriggja heima.
Þú munt kynnast eigin máttardýri sem er innri leiðsögn og einnig
fræðast um frumefnin fjögur sem eru jörð, vatn ,eldur og vindur.
Einnig upplifir þú tengsl við alheimsorkuna og unnið er með
næmni þína og ýmsa aðra töfra sem hjálpa þér í daglegu lífi.
Unnið verður með kristal steina og hvernig þeir geta hjálpað þér
að tengjast sjálfri þér.
Um Sigrúnu Björk
Sigrún Björk - Hlátur Mildi Björninn fékk þetta nafn í náminu.
Sigrún Björk hefur lært OPJ, NA-Shamanisma hjá Otter Dance school of
Earth Medicine.
Usui Reiki meistari, Orkuheilun (Sat Nam Rasayan), Tónheilun,
Kundalini- og Slökunar- jógakennari.
Kennt er á Mánudögum kl. 17.30 - 19.00
Námskeiðið hefst 9.febrúar og stendur til 2.mars.
Verð: 20.000
Aðeins örfá pláss í boði.
Skráning fer fram hér:https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða síma 551-8130.
Gott er að vera með vatnsbrúsa og vera í þægilegum fötum og mæli með
að hafa skriffæri og skrifblokk.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Skipholt 50d, 105 Reykjavík, Iceland, Skipholt 50D, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.







