Advertisement
Samhengi // Site - spesificÞóranna Dögg Björnsdóttir
In her presentation Þóranna will talk about creating site - specific works; about exploring, mapping, memorising, sound-hunting and transformative approaches, engaging emotionally and physically to a place through experiments and exercises.
-----
Þóranna Dögg Björnsdóttir stundaði tónlistarnám frá unga aldri og lauk burtfararprófi í klassískum píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH. Hún lauk BA gráðu í ArtScience frá Konunglega Listaháskólanum í Haag og M.Art.Ed gráðu í kennslufræði lista við Listaháskóla Íslands. Þóranna hefur sótt ýmis námskeið og vinnustofur í tengslum við tónlist, hljóð- og myndlist og staðið að kennslu í þeim efnum.
Viðfangsefni Þórönnu í listsköpuninni eru mörg og fjölbreytt en snúast gjarnan um heimssýn einstaklingsins, hvernig hún mótast og þróast. Þóranna hefur í gegnum tíðina starfað að þverfaglegum verkefnum í listsköpun sinni, þar sem þátttaka áhorfenda er gjarnan listrænn útgangspunktur við mótun verkanna. Verk hennar eru iðulega sambland af mynd og hljóði; taka form í gegnum lifandi gjörninga, innsetningar, skúlptúra og hljóðverk
Verk Þórönnu hafa verið flutt víða og hefur hún komið fram á fjölmörgum tónleikum og listahátíðum á Íslandi og erlendis. Þóranna hefur einnig starfað með listahópnum Wunderland (sjá https://wunderland.dk/) um árabil.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Skipholti 31, 105 Reykjavík, Iceland, Skipholt 31, 105 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland