Advertisement
Félagar í stúkunni Mörk standa fyrir sómatískri samveruhelgi en í þetta sinn tengjum við hana við Dísablót. Á Íslandi til forna var í lok október haldin hátíð sem kölluð var veturnætur og þá var haldið dísablót á Norðurlöndum (disting) til heiðurs formæðrum og kvenkyns andaverum.Dagskráin hefst á því að Eva Rós Gústavsdóttir, jógakennari og meistaranemi í sálfræði, leiðbeinir okkur í gegnum öndunaræfingar.
Því næst leiðir Kolbrún Kolbeinsdóttir, kynjafræðingur, hugleiðslu tengda formæðrum sem Margrét Hugrún skrifar og að lokum tekur Kvika Föld við og leiðir okkur í gegn um heilandi dans. Að endingu förum við upp á efri hæð og gæðum okkur á veitingum.
Kvika Föld er Movement Medicine kennari, dansari og myndlistarkona. Hún er fædd og uppalin í Transilvaníu og bjó um árabil í Svíþjóð en síðustu rúm tuttugu árin hefur hún búið á Ísland.
Um Movement Medicine aðferðina:
Hreyfing er lækning. *Movement Medicine* er aðferð sem byggir á því að við getum komist í tengingu við líkamann, jörðina; öll frumefnin 5, umhverfið og tilveruna með því að leyfa líkamanum að hreyfa sig við tónlist. Það er andleg lækning í dansi enda er dansinn ein af aðferðunum sem notaðar hafa verið af mannkyninu um aldir alda til að komast í samband við æðri vitundarstig.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland