Advertisement
Á Alþjóðlegum degi geðheilbrigðis, 10. október, standa Advania og Mental ráðgjöf fyrir ráðstefnu ætlaðri áhugasömum stjórnendum og öðrum fulltrúum vinnustaða. Ráðstefnan fer fram í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni fimmtudaginn 10. október frá kl. 9.00-10.30. Yfirskrift ráðstefnunnar er Geðheilbrigði á vinnustað.https://advania.velkomin.is/vidburdur/radstefna-gedheilbrigdi-a-vinnustad
Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða:
Ketill Berg Magnússon, Mannauðsstjóri Marel í N-Evrópu
Sigrún Ósk Jakobsdóttir, Mannauðsstjóri Advania
Sindri Már Hannesson, Markaðsstjóri Tixly
Sigurbjörg Sigurpálsdóttir og Sóley Kristjándóttir, stuðnings- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
Helena Jónsdóttir, Stofnandi Mental
Fundarstjóri er Ásdís Eir Símonardóttir
Að loknum snörpum erindum fyrirlesara frá kl. 9-10 er gert ráð fyrir 30 mínútum í pallborðsumræður og tekið verður við spurningum úr sal. Húsið opnar 8:30.
Mental ráðgjöf heldur upp á Alþjóðlegan dag geðheilbrigðis 10. október sérstaklega hátíðlega í ár í samstarfi við Advania, Visku – stéttarfélag, Reykjavíkurborg, Tixly – tix.is, Tryggingastofnun og Mannauð – félag mannauðsfólks á Íslandi. Þessi ráðstefna er hluti af vitundarvakningu 7.-11. september um geðheilbrigði á vinnustöðum þar sem ætlunin er að vekja svo um munar máls á mikilvægi þess að vinnustaðir hlúi að andlegri heilsu starfsfólks og stuðli að geðheilbrigðu vinnuumhverfi.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík, Iceland, Guðrúnartún 10, 105 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets