Advertisement
Páska kanínan verður á ferðinni í Gufunesi að vanda.Þess vegna hvetjum við alla til þess að koma til okkar og hjálpa okkur að finna eggin sem hún ætlar að fela þar.
Það verða yfir 1000 egg í boði á staðnum og heitt á könnunni fyrir eldri kynslóðina.
Hvað verður í boði:
*Eggjaleitinn verður ræst kl 10:00.
*það fá allir 1 súkkulaði egg fyrir 1 fundið skraut egg (2 eggja hámark á einstakling til að byrja með en við felum eggin nokkrum sinum og reynum að tryggja að allir geti fengið egg).
*Afmarkað leitarsvæði fyrir minni krakkana
*Húla keppni þar sem verða keppt í þrem aldursflokkum og þar eru auðvitað páskaegg í verðlaun.
*Ratleikur sem vísar á nokkur Gull egg sem verða falinn á svæðinu en fyrir þau er hægt að fá stærri vinnings egg.
Svo er auðvitað urmull af leiktækjum á svæðinu.
*Kaffi í Grillskýlinu
*Plokk fyrir foreldrana :D (tínur og pokar)
*Við biðjum þá sem koma að hamstra ekki egg svo að minnstu leitarmennirnir fái örugglega líka að finna egg.
Skemmtilegt leiksvæði á staðnum fyrir börn á öllum aldri.
Það eru allir velkomnir og við vonumst til þess að hitta sem flesta.
bestu kveðjur
Stjórn Félags sjálfstæðimanna í Grafarvogi
Stjórn Félags sjálfstæðismanna í Grafarholti og Úlfarsárdal
Stjórn félags sjálfstæðismanna á Kjalarnesi.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Gufunesbær, Gufunesbær, Gufunes, 112 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland