Advertisement
Miðvikudaginn 12. febrúar 2026 frá kl. 14-17. Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42. Reykjavík (2 hæð).Leiðbeinandi er Jón Arnar Baldurs, aðjunkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi.
Starfsmaður frá TR svarar spurningum varðandi áhrif atvinnutekna við útreikning örorkulífeyris.
Rit- og táknmálstúlkun í boði. Mikilvægt að skrá í umsóknarformi.
Hægt verður að taka þátt á námskeiðinu í gegnum Zoom.
Námskeiðið er á vegum kjarahóps ÖBÍ og atvinnu- og menntahóps ÖBÍ.
Námskeiðslýsing:
Aðilar í eigin rekstri þurfa við gerð skattframtals að útbúa rekstrarreikning vegna starfsemi sem hefur að geyma upplýsingar um tekjur og gjöld á árinu. Hvað teljast tekjur er yfirleitt frekar einfalt en vandamálin snúa fremur að því hvaða kostnað má gjaldfæra á móti tekjum?
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig á að setja upp rekstrarreikning á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga um tekjur og gjöld, svo að fylla út eyðablöð skattaframtals á grundvelli upplýsinga í rekstrarreikningi.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Rekstur á eigin kennitölu, fyrir smáfyrirtæki (velta allt að 10-15 milllj.).
Veltulágmarkið í virðisaukaskatti.
Frádráttarbæran rekstrarkostnað. Hvað má ekki draga frá tekjum.
Einka- og eignakostnað.
Gerð rekstrarreiknings.
Framtal til skatts (Eyðublöð 4.10 og 4.11). Einnig verður farið yfir önnur eyðublöð sem tilheyra einstaklingsrekstri (Eyðublöð 4.01, 4.03 og 4.05).
Takmarkaður sætafjöldi í boði. Nauðsynlegt að skrá sig hér:
https://www.obi.is/skraning-a-namskeid-hvernig-geta-oryrkjar-verid-sjalfstaett-starfandi/
Lokað verður fyrir skráningu 9. febrúar.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Mannréttindahúsið, Sigtún 42,Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








