Advertisement
Mótettukórinn flytur allar mótettur J.S. Bachs ásamt hljóðfæraleikurum og einsöngvurum á glæsilegum tónleikum í Hallgrímskirkju þann 28. september, undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar.Tónleikarnir eru til heiðurs stofnanda og fyrrum stjórnanda kórsins, Herði Áskelssyni. Þetta er einstakt tækifæri til að hlýða á allar mótettur Bachs í heild sinni, en mótetturnar hafa löngum verið taldar meðal fegurstu kórverka sögunnar. Mótetturnar, Singet dem Herrn ein neues Lied - BWV 225, Der Geist hilft unser Schwacheit auf - BWV 226, Jesu, meine Freude - BWV 227, Furchte dich nicth - BWV 228, Komm, Jesu komm - BWV 229 og Lobet den Herrn, alle Heiden, BWV 230, verða hér fluttar af hinum eina sanna Mótettukór í fullum skrúða, með fulltingi hljóðfæraleikara og einsöngvara, og verður engu til sparað. Í því skyni hefur kórinn notið liðsinnis söngvarans Benedikts Kristjánssonar við æfingar og undirbúning.
Miðasala fer fram á tix.is. Miðaverð er kr. 6.900, en 4.900 fyrir lífeyrisþega, öryrkja, meðlimi Listvinafélagsins og börn undir 12 ára aldri.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hallgrímskirkja, Fish&co, Egilsgata, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets