Advertisement
Hvaða tækni virkar á íslensku? Hvað með stóru mállíkönin og gervigreindina - eru þau orðin nógu góð til að við getum notað þau? Hvar eru tækifærin fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir til hagnýtingar tækni sem virkar á íslensku?Almannarómur efnir til máltækniþings við upphaf viku íslenskrar tungu. Þar gefst gott tækifæri til að koma saman og eiga uppbyggilegt samtal um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við nú þegar Máltækniáætlun 2 er komin til framkvæmda. Dagskráin er opin öllum áhugasömum - skráning hér: https://almannaromur.is/skraningarsida
Máltæknitorg - Gróska - kl. 08:30-13:00
Allt frá spjallmennum til menntatækni til íslenskumælandi gervigreindar - á máltæknitorgi verður fjöldi fyrirtækja sem kynna tæknilausnir sem skilja og tala íslensku.
Morgunfundur - Sykursalurinn í Grósku - kl. 09:00-10:45.
Ávarp ráðherra - Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
Kannski, kannski ekki - Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi Deloitte og formaður stýrihóps um máltækniáætlun 2, fjallar um stöðu máltækni á Íslandi í dag: Hvað er nú þegar hægt að gera og hvað er framundan?
Lærlingar seiðskrattans - Sverrir Norland, rithöfundur, hugleiðir hvaða afleiðingar innleiðing gervigreindar hefur á daglega tilveru okkar. Tekst vélinni að líkja á sannfærandi hátt eftir manninum eða er maðurinn kannski frekar farinn að líkja æ meira eftir vélinni? Og hver er við stjórnvölinn?
Hagnýt máltækni - hvert er hlutverk fyrirtækja og stofnana? -
Ragnheiður H. Magnúsdóttir (Nordic Ignite) stýrir pallborðsumræðum meðal:
Ara Daníelssonar - forstjóra Origo,
Lindu Heimisdóttur - framkvæmdastjóra Miðeindar,
Loga Karlssonar - framkvæmdastjóra tæknisviðs Símans og Sigríðar Mogensen - sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins
Fundarstjóri er Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður stjórnar Almannaróms.
Málstofur:
Málstofa: Höfundarréttur, gervigreind og listir
Parketið í Mýrinni, Grósku, kl. 11:15-12:30
Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og eigandi á LEX. Lára er meðal fremstu sérfræðinga landsins á sviði upplýsingatækniréttar, hugverkaréttar og persónuverndar og mun hún á málstofunni fjalla um helstu viðfangsefni tengd gervigreind og höfundarrétti í samhengi við listir á Íslandi í dag.
Í kjölfarið munu þau Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi máltæknifyrirtækisins Miðeindar, Halldór Eldjárn listamaður, Halldór Armand rithöfundur og Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnastjóri RÚV, ræða málin ásamt málstofugestum.
Málstofa: Menntun og máltækni mætast
Parketið í Mýrinni, Grósku, kl. 13:00-14:30
Í samvinnu við HIM – Hugveitu um inngildandi menntatækni og Nýsköpunarstofu menntunar hjá Menntavísindasviði HÍ verður á málstofunni fjallað um verkefni og fyrirtæki sem fást við menntatækni. Frummælendur á málstofunni eru: Frummælendur:
Anna Nikulásdóttir, framkvæmdastjóri Grammateks ehf.
Fanny Sanne Sissoko, þjónustuhönnuður Reykjavíkurborg
Sigríður Ólafsdóttir, PhD dósent , Menntavísindasvið, Háskóli Íslands
Donata Honkowicz Bukowska, Mennta- og barnamálaráðuneyti
Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, Verkefnastjóri í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum Iðnaðarins
Skráning: https://almannaromur.is/skraningarsida
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Gróska, Sturlugata 6, 102 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland