Advertisement
Ef allt gengur upp þá verða þessir tónleikar númer 100 - hvergi betra að enda svona Kirkju-Maraþon en í Hallgrímskirkju ? Þegar þetta er skrifað er ég búinn með 64 kirkjur - og get sagt með vissu að það er enginn kirkja eins, allar með sinn karakter. Satt best að segja þá kvíði ég pínu að þetta ævintýri skuli vera að klárast - þetta er ein allra besta hugmynd sem ég hef fengið, að fá að hitta allt þetta yndislega fólk og spila músík í þessum fallegu húsum er draumi líkast ❤️ og eitt það skemmtilegasta sem ég hef fengið að gera um ævina.
Mig langar að mana þig til að koma og upplifa þessa lokatónleika með mér í geggggggjuðum fíling.
Stuðkveðja, Mugison.
Tónleikarnir eru um 60 mínútur
Verð:
4.500 kr í forsölu
5.000 kr við hurð
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hallgrímskirkja, Reykjavík, Iceland
Tickets